top of page
21_olafur_robert_rafnsson_1-1000x620.jpg

Ólafur R. Rafnsson - Ráðgjafi (Partner)

Ólafur er kerfisfræðingur og Lead Auditor í ISO/IEC 27001 og Certified Information Systems Auditor frá ISACA síðan 2013. Ólafur starfaði hjá KPMG frá árinu 1998 til 2005, m.a. sem forstöðumaður upplýsingatæknimála og síðar sem ráðgjafi í upplýsingaöryggismálum með áherslu á stjórnunarkerfi um upplýsingaöryggi (ISO27001).

Þá hefur Ólafur leitt fjölmörg verkefni sem varða framkvæmd á tæknilegum öryggisprófunum og aðstoðað við útfærslu á skipulagi við að festa í sessi reglubundnar úttektir á öryggi kerfa ásamt því að vinna við úttektir. 

Ólafur var öryggisstjóri hjá Tryggingamiðstöðinni 2006, framkvæmdastjóri hjá Capacent IT Services 2006-2008, CIO hjá Capacent International og ráðgjafi í áhættustjórnun og upplýsingatækni hjá Capacent frá 2006-2016. Ólafur hefur leitt innleiðingu á stjórnunarkerfi um upplýsingaöryggi hjá fyrirtækjum í orku-, fjármála-, og tæknigeiranum mörgum þeirra hefur lokið með vottun ásamt því að hafa komið að innleiðingu og samræmingu áhættustjórnunar hjá fjölda fyrirtækja og stofnanna.

Ólafur er formaður tækninefndar hjá Staðlaráði Íslands og starfar nú sem ráðgjafi í áhættustjórnun og upplýsingaöryggi hjá Formönnum.


Hafa samband:
Netfang: olafur.rafnsson@formenn.is
Sími: 840 2000

bottom of page